Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Fréttir
Sumarkveðja! Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 09 júlí 2010 14:51

Nú er síðasti dagur fyrir sumarfrí langt kominn. Um leið og við kveðjum ykkur og óskum ykkur góðra daga í sumarfríinu langar okkur að gefa ykkur uppskrift af skemmtilegum sápukúlum. Við opnum aftur mánudaginn 9. ágúst.

Kveðja,

starfsfólk Lækjaborgar.

 

Töfrasápukúlur

1 brúsi Fairy uppþvottalögur

4 bollar sykur

4 bollar vatn

1 blað matarlím

Uppþvottalögur settur í 2 lítra flösku. Sykur og vatn soðið saman, matarlím sett útí og leyst upp. Lögurinn kældur og hellt saman við uppþvottalöginn. Látið samlagast. E.t.v. þarf meiri uppþvottalög en gefið er upp, prófið ykkur áfram þangað til þið fáið töfrandi sápukúlur!

Gleðilegt sumar 

 
Hjóladagur í dag! Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Dvergasteini
þriðjudagur, 06 júlí 2010 15:19

Í dag var hjóladagur hjá okkur á Dvergasteini. Við hjóluðum öll saman yfir á fótboltavöllinn og körfuboltavöllinn hjá Laugalækjarskóla hér við hliðina. Þar hjóluðum við og skemmtum okkur vel. Við settum upp keilur og æfðum okkur að beygja til hægri og vinstri og jafnvel að hjóla í 8.

Sumir komu með tvíhjól, með eða án hjálpardekkja og sumir komu með hlaupahjól. Allir voru með hjálm! Sumir lánuðu hjólin sín og fengu að prófa hjól hjá einhverjum öðrum í staðinn.

Myndir frá hjóladeginum eru komnar í myndaalbúm Dvergasteins, flokkaðar með júlímyndunum.

Takk fyrir þennan skemmtilega hjóladag!

 
Emma hætt Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 01 júlí 2010 14:11

Í gær var síðasti dagur Emmu hjá okkur í Lækjaborg.

Við kveðjum Emmu með söknuði, þökkum henni fyrir samstarfið og óskum henni velfarnaðar!

 
Sumar og gleði Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá Huldulandi
miðvikudagur, 23 júní 2010 13:25

Kæru foreldrar.

Af okkur er allt hið besta að frétta. Við höfum nýtt góða veðrið til hins ítrasta og verið mikið úti. Meðal annars höfum við skellt okkur í göngutúr þrisvar. Í fyrsta skipti fórum við upp í Rauðalæk og horfðum á 30 ára afmælissýningu Brúðubílsins. Í annað skipti fórum við á rólóvöllinn bak við Ísbúð Laugalækjar. Í þriðja skipti fórum við að ¨Orminum¨ niðri í Laugardal hjá Þvottalaugunum.

Sumarhátíðin gekk stórkostlega og allir skemmtu sér til hiðs ítrasta.

Að lokum eru komnar myndir frá sumarhátíðinni og tveim af fyrrgreindum göngutúrum á myndasíðuna og ég hvet alla að skoða þær.

Með kveðju.

Sigga, Tabi, Álfheiður og Bárður.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Síða 1 af 11

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Lækjaborg | 105 Reykjavík | Sími: 568-6351 | Póstur | Viðburðir | Fréttir