Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn minn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

Leikskólinn Lækjaborg við Leirulæk er 3ja deilda leikskóli sem var opnaður sumarið 1972. Rekstraraðili skólans er Reykjavíkurborg.  63 börn geta verið samtímis í skólanum og eru deildir hans aldursskiptar. Unnið er eftir aðalnámskrá leikskóla sem gefin er út af Menntamálaráðuneytinu.

 
Lækjaborg er fjölmenningarlegur leikskóli þar sem lögð er áhersla á fjölbreytileikann í mannlegum samskiptum. Einkunnarorð okkar eru vinátta, virðing og jafnrétti. Það er okkar sannfæring að fordómar spretta af þekkingarleysi. Því er mikilvægt að leikskólinn skapi tækifæri fyrir börn til að kynnast sjálfum sér og öðrum, sterkum og veikum hliðum hvers annars og ólíkum bakgrunni. Þá verða þau tilbúnari til að mæta nýju fólki og aðstæðum með gagnrýnum og opnum huga. Því eins og sagt er: Allir geta eitthvað en enginn getur allt.
 

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill næstu daga

 
Lækjaborg | 105 Reykjavík | Sími: 568-6351 | Póstur | Viðburðir | Fréttir