| Sumarkveðja! |
|
|
|
| Almennar fréttir | |
| föstudagur, 09 júlí 2010 14:51 | |
|
Nú er síðasti dagur fyrir sumarfrí langt kominn. Um leið og við kveðjum ykkur og óskum ykkur góðra daga í sumarfríinu langar okkur að gefa ykkur uppskrift af skemmtilegum sápukúlum. Við opnum aftur mánudaginn 9. ágúst. Kveðja, starfsfólk Lækjaborgar.
Töfrasápukúlur 1 brúsi Fairy uppþvottalögur 4 bollar sykur 4 bollar vatn 1 blað matarlím Uppþvottalögur settur í 2 lítra flösku. Sykur og vatn soðið saman, matarlím sett útí og leyst upp. Lögurinn kældur og hellt saman við uppþvottalöginn. Látið samlagast. E.t.v. þarf meiri uppþvottalög en gefið er upp, prófið ykkur áfram þangað til þið fáið töfrandi sápukúlur! Gleðilegt sumar
|