|
|
|
| þriðjudagur, 06 júlí 2010 15:19 | |
|
Í dag var hjóladagur hjá okkur á Dvergasteini. Við hjóluðum öll saman yfir á fótboltavöllinn og körfuboltavöllinn hjá Laugalækjarskóla hér við hliðina. Þar hjóluðum við og skemmtum okkur vel. Við settum upp keilur og æfðum okkur að beygja til hægri og vinstri og jafnvel að hjóla í 8. Sumir komu með tvíhjól, með eða án hjálpardekkja og sumir komu með hlaupahjól. Allir voru með hjálm! Sumir lánuðu hjólin sín og fengu að prófa hjól hjá einhverjum öðrum í staðinn. Myndir frá hjóladeginum eru komnar í myndaalbúm Dvergasteins, flokkaðar með júlímyndunum. Takk fyrir þennan skemmtilega hjóladag!
|