|
|
Barnið er slysatryggt á meðan það dvelur í leikskólanum. Ef barnið verður fyrir slysi eða veikist er haft samband við foreldra. Náist ekki í þá, eða ef um alvarlegt slys er að ræða er farið beint með barnið á slysadeild eða heilsugæslustöð. Leikskólar Reykjavíkur borga fyrstu komu barns á slysadeild og eina endurkomu. Þegar barn hefur verið veikt heima og með hita er eðlilegt að barnið fái að vera hitalaust heima einn dag til þess að jafna sig. Eftir veikindi er barninu velkomið að vera inni hjá okkur einn dag. Í þeim tilfellum sem barn er með ofnæmi af einhverju tagi þarf starfsfólk að fá staðfestingu um það frá lækni. |
|
|
Vinsamlegast virðið vistunartíma barna. Vinnutími starfsfólks miðast við fjölda þeirra barna sem eru í skólanum hverju sinni. Ef að börn mæta of snemma eða eru sótt of seint getur komið upp sú staða að það sé undirmannað í skólanum. |
|
Vinsamlegast látið okkur vita þegar barn veikist, tekur sér frí eða mætir ekki í leikskólann.
|
|
|
Mikilvægt er að klæðnaður barnsins sé þægilegur og að það sé klætt eftir veðri. Nauðsynlegt er að barnið hafi með sér aukafatnað og gott getur verið að hafa inniskó. Nauðsynlegt er að merkja föt barnanna en merkt föt koma yfirleitt í leitirnar ef þau týnast. Í leikskólanum vinnum við með ýmis efni, s.s. liti, lím og málningu sem geta farið í föt barnanna. |
|
Allir foreldrar eru boðaðir í foreldraviðtöl tvisvar sinnum á vetri en foreldrar geta einnig óskað eftir viðtali á öðrum tímum. Í þessum viðtölum er m.a. rætt um líðan barnsins á leikskólanum, þroska barnsins, hvernig barninu gengur í félagslegum samskiptum o.fl. Leikskólakennari getur líka boðað foreldra í viðtal ef hann telur þörf á því. Foreldrar eru velkomnir í leikskólann til að taka þátt í því starfi sem þar fer fram í samráði við starfsfólk. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 2 |