|
Ítrekun frá starfsfólki Lækjaborgar. |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 21 apríl 2009 12:01 |
|
Af gefnu tilefni viljum við minna á það að næsta föstudag, 24. apríl, mun leikskólinn ekki opna fyrr en klukkan 12.30. Hádegismatur verður ekki í boði þann daginn. Þessi óvenjulegi opnunartími orsakast af skipulagsdegi starfsmanna leikskólans fyrir hádegi þann sama dag.
Kær kveðja,
Starfsfólk leikskólans Lækjaborgar. |
|
|
Fréttir frá Huldulandi
|
|
fimmtudagur, 16 apríl 2009 13:07 |
|
Hulduland, 16. apríl 2009
Komið þið sæl kæru foreldrar og aðrir velunnarar. Nú eru hjólin farin að snúast varðandi fréttaflutning frá Huldulandi á heimasíðunni. Ekki seinna vænna þar sem að sumarið nálgast óðfluga. Margt og mikið var gert hér vikurnar fyrir páska. Þann 20. mars var til dæmis hinn svokallaði Bjartsýnisdagur. Þá bjuggum við saman til risastóra sól sem enn hangir inni á deildinni. Við máluðum hana í sameiningu gula og bættu aðstoðarmenn okkar á Huldulandi geislum við.
Í tilefni páskanna föndruðum við líka alveg heilmikið. Meðal annars máluðum við hænuegg í litríkum litum. Gríðarleg vonbrigði þegar í ljós kom að ekki var um súkkulaðiegg að ræða. Annars bjuggum við líka til páskaegg úr pappa og límdum glimmer og allskyns skraut á það. Aftur voru það gríðarleg vonbrigði að ekki var um alvöru súkkulaði að ræða. Við kennum aðstoðarmönnum okkar á Huldulandi um.
Að lokum bendum við ykkur á það að þann 24. apríl opnar leikskólinn ekki fyrr en klukkan 12.30 vegna skipulagsdags aðstoðarmanna okkar.
Kær kveðja, börnin á Huldulandi.
PS. Nýjar myndir eru nú aðgengilegar á myndasíðunni.
|
|
Almennar fréttir
|
|
miðvikudagur, 08 apríl 2009 10:22 |
|
Hæ hæ!
Það er búið að vera fámennt hjá okkur í vikunni, sum börnin eiga eldri systkyni og eru kannski í smá auka páskafríi en við hin erum búin að vera að leika okkur mikið og Herdís er búin að vera með viðtöl. Í dag vorum við að þæfa sumarblóm inní listaskálanum.
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra páska þá viljum við minna á skipulagsdaginn sem er á föstudaginn 24. apríl nk. Leikskólinn er lokaður fyrir hádegi en opnar aftur kl 12:30 en það verður engin hádegismatur í skólanum þann daginn.
Hello!
This week some children have started their Easter holdays early, maybe they have brothers and sisters that are at home, but the rest of ushave been busy playing both inside and out. Herdís has been busy doing the parent interviews and today we were using Icelandic wool to felt summer flowers which we will use to decorate the classroom.
We would like to use the opportunity to remind you all that on Friday April 24th Lækjaborg will be closed before lunch for a staff day, we open again at 12:30 but there will be no lunch served that day.
Have a great easter holiday break and we look forward to seeing you all next Tuesday,
Best wishes from Jane, Herdís, Banu og Sóley. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 10 af 21 |