|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 09 júlí 2010 14:51 |
|
Nú er síðasti dagur fyrir sumarfrí langt kominn. Um leið og við kveðjum ykkur og óskum ykkur góðra daga í sumarfríinu langar okkur að gefa ykkur uppskrift af skemmtilegum sápukúlum. Við opnum aftur mánudaginn 9. ágúst.
Kveðja,
starfsfólk Lækjaborgar.
Töfrasápukúlur
1 brúsi Fairy uppþvottalögur
4 bollar sykur
4 bollar vatn
1 blað matarlím
Uppþvottalögur settur í 2 lítra flösku. Sykur og vatn soðið saman, matarlím sett útí og leyst upp. Lögurinn kældur og hellt saman við uppþvottalöginn. Látið samlagast. E.t.v. þarf meiri uppþvottalög en gefið er upp, prófið ykkur áfram þangað til þið fáið töfrandi sápukúlur!
Gleðilegt sumar

|
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 01 júlí 2010 14:11 |
|
Í gær var síðasti dagur Emmu hjá okkur í Lækjaborg.
Við kveðjum Emmu með söknuði, þökkum henni fyrir samstarfið og óskum henni velfarnaðar! |
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 28 maí 2010 14:24 |
|
Um miðjan apríl byrjaði hjá okkur nýr starfsmaður. Það er hún Harpa Ragnarsdóttir. Hún vinnur á Dvergasteini auk þess sem hún er í afleysingum. Velkomin Harpa! |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 21 |